--->

Omminn.tripod.com
Hér skrifar Omminn það sem honum finnst...

passiðykkur

This page is powered by Blogger. Isn't yours?
18.3.01
En það er hinsvegar eitt sem að ég hef lært hér í dag á þessari ágætu samkomu sem er í gangi í bláasal "Styrkur unga fólksins" og það er að menn þeir fokka ekkert í guði. Því ef þú fokkar ekki í guði þá fokkar guð ekkert í þér. Amen fyrir því.


Mér líður vel. Mér líður mjög vel. Ég er sáttur í þessum líkama.


Ævintýri gærdagsins um varatökurnar ætlar greinilega ekki að enda hljóðlega. Rauðsokkurnar í Bríeti skerast nú í leikinn og senda mér hver skilaboðin á fætur öðru og trúið því eður ei, pródúser Kastljóssins, Bragi Kolbjörnsson, skildi eftir skilaboð í talhólfinu mínu og vildi fá mig til að ræða um kynhegðun ungs fólks í þættinum. Þegar ég hringdi tilbaka og spurðist fyrir um málið var greinilegt að þau hugðust nota mig sem einhvert sirkúsdýr. Einhvern "dontgiveafucknáunga" sem lítur á konur sem annars flokks spendýr. Ég stend ekki í svoleiðis og afþakkaði. Nota bene, Bríetarstelpurnar höfðu bent á mig. Ominn er ekki, hefur aldrei og mun aldrei nokkurn tímann verða að söluvöru.


Enn valda orð mín hér á síðunni fjaðrafoki hjá yngismeyjum og rétt í þessu bættist sóknarprestur Breiðfirðinga í umræðuna og skammaði mig fyrir kvennfyrirlitningu. Bætti því reyndar við að fátt í Biblíunni væri að finna sem ýtti undir slíkar skoðanir. Þessi pokaprestur hefur greinilega aðeins lesið glósur fyrir guðfræðiprófin, en aldrei biblíuna sjálfa sem iðar öll í rasisma, kvenfyrirlitngsisma og pragmatisma. Ekki svaranna verður. Einnig vil ég tilkynna ykkur það hér með kæru lesendur, að allt þetta mál hefur orðið til þess að ég hefi kynnt mér líkama kvenna allrækilega í yndislestri mínum á þeim ágæta doðranti Kona þekktu líkama þinn og hef tekið þá yfirveguðu ákvörðun að haustið 2002, þegar ég kveð Þorvarð Elíasson og held mína leið úr Verzlunarskólanum, mun ég skrá mig í læknisfræði með það fyrir augum að sérhæfa mig í kvensjúkdómalækningum. Batnandi mönnum er best að lifa. Ominn er farinn að lúlla.


Síðasta færsla mín hefur valdið miklu fári hjá hinum fjölmörgu lesendum síðunnar og hafa mér borist mörg "stafþenslurafboð" frá mér yngri stelpum þar sem þær kvarta ýmist sáran undan ófeminískri afstöðu minni til munnmaka ellegar því að þær hafa verið skildar útundan í varatökum mínum. Ætlun mín var ekki að styggja neinn, einungis svipta hulunni af blekkingarvef fáfræðinnar sem hér tröllríður öllu. Ef fólk myndi lesa Varðturninn, rit Votta Jehóva á Íslandi, og virkilega reyna að fara eftir því sem þar stendur væri ekki svo komið fyrir okkur.


Sumir tala um það að þegar stelpa setur typpið á strák upp í munninn á sér sé hún að gefa tott. Þetta er alrangt. Stelpan gefur ekki nokkurn skapaðan hlut í þessu sambandi. Mun nær er að tala um að henni sé riðið í kjaft eða eins og góður vinur minn segir; tekin í vörina. Ekki einu sinni Þorgrímur Þráinsson gæti neitað sér um svo feita lummu.